|
50 gr gráðostur og 3 msk af rjóma er stappað saman uns blandan er jöfn og góð. Hrærið 50 gr af kotasælu eða óhrærðu skyri með 1 msk af þurru hvítvíni. Kotasælu og gráðosti þeytt saman með eggjaþeytara. Sósuna má þynna td. með köldu kjúklingasoði. |
|
Salt og nýmalaður pipar sett saman við sinnepsduft og ½ tsk af sykri, því blandað út í 2 msk af sítrónusafa og hrært uns salt og sykur er uppleyst. 5 msk af jómfrúarolíu er þeytt saman við kryddblönduna. Klippið graslauk yfir sósuna og hellið henni yfir salatið. |
|
Basilika, dill, kerfill, steinselja, rósmarín og timian er skolað, þerrað og saxað fínt. Einn laukur og 1 hvítlauksgeiri eru afhýddir, laukurinn saxaður mjög fínt og hvítlaukurinn pressaður. Kryddjurtir, laukur, 1 dl af jógúrt og 1 ½ dl af rjóma hrært saman. Sósan er krydduð með salti og nýmöluðum hvítum pipar eftir smekk. |
|
|
Afhýðið og rífið tvo smálauka, hæfilegt (2 msk) magn af basiliku af söxuð fínt, eða rifin, 3 msk af þurru hvítvíni og 1 msk af hvítvínsediki, ¼ tsk af salti og sama magni af nýmöluðum hvítum pipar er hrært saman við uns saltið er uppleyst. Lauknum, basil og kryddblöndunni er þeytt létt saman. |
|
Sjö ljósleit sinnepskorn og 2 hvít piparkorn eru steytt í mortéli. Ein msk Dijon sinnep er hrært út í 1 tsk af hvítvínsediki, steyttum sinnepskornunum bætt við ásamt ½ tsk af sykri. 1 ½ dl sýrður rjómi, ¼ tsk salt og 1 eggjarauðu hrært vel saman, sinnepsblöndunni bætt út í og hrært vel saman. |
|
Fjórar greinar estragon, kerfil, steinselju og graslauk. Tveir smálaukar.
½ tsk salt, ¼ tsk nýmalaður hvítur pipar og 2 msk af hvítvínsediki hrært saman, 4-5 msk af jómfrúarolíu hrært saman við og kryddjurtunum ásamt fínsöxuðum lauknum bætt út í. Einnig má pressa hvítlauk saman við. |
|
|
|
|
|