Heim Kryddjurtir
Ferskar kryddjurtir
Oregano/Kjarrminta

Ómissandi í alla ítalska matargerð.   

 
Graslaukur

Notaður til bragðauka og skreytinga í matseld. Hefur milt laukbragð. Er notaður ferskur en er einnig hægt að frysta. Saxaður í salöt, osta- og eggjarétti. Sem skraut á rjómasósur, kartöflumús og bakaðar kartöflur, gjarnan blandaður steinselju og kerfil.   

 
Dill

Er gott með lamba- og grísakjöti, fiski, grænmeti eggjum og í sósur og súpur. Einnig notað sem krydd í smjör og kryddolíur. Ómissandi með síld og graflaxi. Þá er dill mjög gott með nýjum kartöflum.

 
Minta

Er td. notuð í jóghurtsósur og lambakjötsrétti. Góð í grænt salat.

 
Vatnakarsi

Notaður til skreytinga á salöt og smurt brauð. Einnig stráð yfir súpur og sósur eftir matseld, missir bragð við suðu. Mjög góður í kartöflu- og grænmetissalöt.

 
Tælenskt Basil

Hefur anískeim og er notað í salöt og austurlenska matargerð.   

 
Rautt Basil

Er gjarnan notað til skreytinga og á sama hátt og græn Basilika í grænmetis-, osta- og eggjarétti. Einnig með ljósu kjöti og fiski. Rautt og grænt Basilikum er notað í pestó.   

 
Timjan/Garðablóðberg

Er ómissandi í tómatrétti, með lambakjöti, villibráð og sósur og kryddolíur. Þolir ágætlega suðu og því mikið notað í pottrétti.

 
Steinselja

Ein algengasta kryddjurtin í evrópu. Mest notuð í kryddpoka (bouqet garni) eða bara stráð yfir matinn að matseld lokinni; td súpur og sósur.

 
Koríander/Cilantro

Stundum nefndur kínversk steinselja. Saxaður út á súpur, sósur og ostarétti. Koríanderfræ eru ein aðaluppistaðan í karrý. Á vel við lax, bæði reyktan og nýjan.

 
Sítrónumelis/Hjartafró

Notuð í te (Lemon balm) og grænmetissalöt. Einnig líkt og steinselja í fiskisósur, í lok matseldar. Hún er líka notuð í súrsæta pottrétti.

 
Ítölsk steinselja

Oft nefnd sléttblaða steinselja, er heldur bragðmeira afbrigði. Steinselja er ómissandi í kryddknippi (bouqet garni).

 
Sítrónubasil

Hefur mildan sítrónukeim og er notað í allskonar salöt.   

 
Basilikum/Basil

Bragðmikil kryddjurt, notuð í lok matseldar td. í tómatrétti og salöt. Á einnig vel við egg, kartöflusalöt, hrísgrjónarétti og með kjöti og fiski. Ómissandi á pasta og pizzur.