Lambhagasalat er ferskt þunnblaðasalat sem er mjög gott í græn salöt eða með áleggi á brauð. Salatið er rifið niður frekar en skorið og borið fram með salatsósu eða kryddolíu og ediki.
Eikarlauf er ómissandi í græn salöt og til skrauts. Nýtur sín vel með öðru blaðsalati, einnig gott með papriku, lauk og hvítlauk í hæfilegu magni. Milt bragð.
Íssalat er stökkt salat, hentar vel í matarmikil salöt t.d. með brauðteningum, steiktu fleski, radísum, sesamfræum, pylsum, ansjósum, tómötum og söxuðum hnetum.