Heim Hveitigras
Hveitigras – græni töfrasafinn Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Hveitigras
Safinn er pressaður úr lífrænt ræktuðu hveitigrasi. Dr. Ann Wigmore kennari og stofnandi Hippocrates Health Institute í Boston innleyddi neyslu safa úr hveitigrasi. Safinn er fullur af næringaefnum,  vítamínum, steinefnum, blaðgrænu (chlorophyll) og ensímum og losar okkur við uppsöfnuð eiturefni í frumum líkamans, sérstaklega fitufrumum.

Hveitigras er mjög orkugefandi, inniheldur allt að 70% blaðgrænu sem er talin auka árangur í líkamsrækt. Blaðgrænan í hveitigrasinu hefur náttúrulega bakteríueyðandi virkni og eyðir einnig slæmri líkamslykt hvort heldur er andremmu, svitalykt eða táfýlu!

Hveitigrasið hefur ferskleikann fram yfir verksmiðjuframleidd fæðubótarefni, enda aðeins notað 10-12 daga gamalt gras sem er afgreitt skorið eða óskorið eftir óskum neytandans.